|
|
06.03.2008 17:24:48 / jollinn
Jæja góðir gestir þá er komið að stóru stundinni. Jollinn og Skratli hafa tekið höndum saman og stofnað nýja síðu: www.skrolli.blogcentral.is
Skoðið og takið þátt.
Ég vil þakka lesendum síðunnar samfylgdina síðustu árin og vona að þið fylgið mér í nýtt og skemmtilegt blog.
Lifið heil
Jollinn
»
03.03.2008 16:43:47 / jollinn
Já það er að koma að því, þá eru viðræðum lokið og hefur fundist samstaða í máli um nýjan skemmtanarisa!!!! Undirbúningur á nýrri síður er á lokastigi og er stefnt á frumsýningu síðar í vikunni og er ég viss um að síðan verður síst lakari en jollinn hefur verið!!! En ég verð að segja ykkur smá sögu af mér sem gerðist fyrir norðan um helgina. Þannig er mál með vexti að ég og Ásgeir fórum með strákana í 4.flokki til Akureyrar að keppa á föstudag og laugardag. Á laugardeginum vorum við að keppa við KA og ætluðum við að bruna í bæinn strax eftir leik. Jæja fínt með það.... Í hálfleik þegar við vorum 1 marki undir og Ásgeir að tala við strákana ætlaði ég að taka markmanninn okkar aðeins afsíðis og tala við hann svo ég og Ásgeir værum ekki að tala ofan í hvorn annan. Ég leit aðeins í kringum mig og besti staðurinn var sturtuklefinn. Ég kalla á hann og segi honum að koma og rölti inn í sturtuklefann en hvað haldið þig!!!! Sturturnar í KA-heimilinu eru með hreyfiskynjurum og þá kveiknar á sturtunum þeim megin sem ég er og rennandi blautur hoppa yfir að hinni hlið klefans en þá kveiknar á sturtunum þeim meginn og ég á mér enga undankomu leið!!!! Þið getið rétt ímyndað ykkur hláturinn sem myndaðist þarna inn í klefanum og því var bara best að drífa sig aftur fram því ekki var hægt að hafa einhverja rosa hálfleiksræðu við þessar aðstæður. Ég hoppaði í einn búningin og buxur og var ready í seinni hálfleik. Setti buxurnar á ofninn á meðan leikurinn var í gangi og náði að þurrka þær talsvert áður en lagt var að stað suður yfir heiðar  NÖRD Jæja þá er bara nokkrir dagar í það að tilkynnt verður um nýja og betri síðu!!!!! Lifið Heil Jollinn
»
25.02.2008 22:42:17 / jollinn
Já ég veit að ég hef verið lélegur í blogginu þessa vikuna en það er góð og gild ástæða fyrir því. Það liggur fyrir að Jollinn entertainment muni loka síðunni en muni mynda samruna með öðrum eintertainment risa sem ekki er hægt að greina frá að svo stöddu.... Viðræður eru hafnar en eru á mjög viðkvæmu stigi. Með samruna þessum munu aðal hlutar Jollans halda áfram að viðbættu öðru skemmtiefni sem mun létta lesendum og aðdáendum síðunnar mikið lífið.
Með von um að þið getið þraukað í nokkra daga svo annað komi í ljós.
F.H Jollinn Entertainment
Eyjólfur Kolbeins
»
18.02.2008 16:11:10 / jollinn
Í dag var starfsdagur í skólanum og ég þurfti ekki að mæta því flestir kennararnir eru úti í Berlín i árshátíðarferð, en ekki ég. En ég er búinn að vera frekar duglegur í dag, búinn að gefa allar einkunnir, þvo fullt af þvotti og er svo að fara að taka til og skúra hérna inn i herberginu mínu... En þegar ég kláraði að gefa einkunnirnar þá fór ég aðeins að lesa gamallt blogg hjá mér og vá hvað mér leið vel...Þvílíkar minningar sem koma upp í hugann um þessi ár á Laugarvatni úff ég fékk bara svona sting í hjartað vegna söknuðar. Ég held að þessi 3 ár séu bara með þeim allra skemmtilegustu sem ég hef og á eftir að upplifa!!!!! Hvað það var margt sem maður gerði og það var líka bara mjög gaman að vera þarna og gera ekki neitt!!! Svo þegar maður les þetta þá man ég alveg hvað var í gangi í hvert skiptið og hvað maður var að hugsa og annað slíkt...... Vildi að ég gæti upplifað þetta aftur, nákvæmlega eins  með sama fólkinu........ Í gær fór svo meirihluti Bíóklúbbsins í bíó að sjá John Rambo!! Tær snilld og ekkert annað en það, Steven Seagal hvað??? Menn verða ekki mikið karlmannlegri en Rambo.... "Life consists not in holding good cards but in playing those you hold well." (Josh Billings)
Stay Classy Jollinn
»
16.02.2008 09:38:15 / jollinn
Ok það sem ég er að fara að skrifa núna getur vakið upp spurningar en ég vona að þið lesið þetta með opnum huga og dæmið mig ekki snar geðveikann og sendið mig inn á stofnun. Ég hef stundum farið inn á youtube og verið að horfa á video af morðunum í Columbine háskólanum. Fyrir ykkur sem vitið ekki hvað ég á við þá voru tveir nemendur sem réðust inn í skólanann og hófu skothríð og drápu 15 nemendur og kennara og enduðu svo á því að skjóta sig í hausinn. Mér þykir þetta virkilega áhugavert mál. Þetta var eiginlega fyrsta skotárásin í bandarískum skóla og upphófst mikil umræða um skotvopna eign í usa. Síðan þá hefur þetta gerst æ oftar og nú síðast á fimmtudaginn. Það er ekki það sem ég ætlaði að tala um heldur hvað ég hefði viljað upplifa þetta!!! Ég veit hvað það er hrikalegt að lenda í þessu og hvað margir eru skemmdir á sálinni eftir þetta en mig langar að vita atburðarrásina, vera fluga á vegg hjá gaurunum sem gerðu þetta. Það er ekkert bara þetta mál sem mig langar að upplifa eða meira svona skilja betur. Þegar Atli Helgason drap Einar Örn hérna um árið vakti upp svipaða hugsun hjá mér, mig langaði að vita hvað hafi farið þeim á milli og hvað gerðist akkurat á þeim tíma sem Atli snappaði og drap hann, hvað gerðist svo og hvernig gerðist það. Þetta langar mig að vita og ég þoli ekki hvað það er lítið sagt í fréttum... I wanna know the hole story "Success is simple. Do what's right, the right way, at the right time." (Arnold H. Glasow)
Jollinn
»
13.02.2008 16:07:10 / jollinn
Fullt
nafn: Óskar Atli
Rúnarsson
Gælunafn: Skratli, Pepe, Spánverjinn
Aldur: 26
Gift / sambúð? Sambúð
Börn: Nei það held ég ekki
Hvað eldaðir þú síðast? Bjó til
spænskann rétt um daginn „el gigante Jorge“
Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Spelt pizzu, lauk, pepperoni,
rjómaost og skinku
Hvernig gemsa áttu? Varla hægt að kalla þetta síma en „þetta“
er Nokia
Uppáhaldssjónvarpsefni? Top gear, Prison og Gilmore
Girls
Besta bíómyndin? Gjörsamlega dýrka Die Hard myndirnar!!!
Hvaða tónlist hlustar þú á? Rapp og Íslensk dægurlög
Uppáhaldsútvarpsstöð: Bylgjan og útvarp Suðurland
Uppáhaldsdrykkur: Pepsi Max og
Appelsín (2/3 Max-1/3 appelsín)
Uppáhalds vefsíða: vegagerdin.is, vedur.is og svo væntanleg
síða jolliogoskar.is
Ertu hjátrúarfull(ur)? Þegar það hentar mér
Hverjir eru kostir þínir? Góður maki, góður vinur, þolinmóður
og með eindæmum góður ökumaður
Hvaða galla hefur þú? Á það til að verða veikur á
sunnudögum
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Scottie Pippen og
Kevin Johnson
Mesta afrek í
lífinu? Verða 26 ára,
kaupa íbúð og ganga í gegnum alla skóla á Laugarvatni nema
húsmæðraskólann
Mestu vonbrigði? Hafa ekki
komist í húsmæðraskólann
Uppáhaldslið í enska boltanum? Liverpool og Northampton
Hver er mesti höstlerinn af vinum þínum? Eyþór Guðna klárlega
og Davíð Óla á sýnum tíma.
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst í lífinu?
Hitti einu
sinni söngkonuna í Igor á bar og söng með henni lagið
Sumarsykur
Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum)
Timbaland,
Jay-Z og Coldplay
Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum?
Gerir ekki upp á milli þeirra sem eru í símanum mínum
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum?
Laugarvatn!!!!
Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Sturta og
Lýsi og ég er klár
Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Tennis spilarinn Atli
Sveinn, vinnur heilu mótin án þess að hafa getu til!!!!
Hver er uppáhalds platan þín? Scientist með Coldplay
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla?
Hef alltaf verið góður í skóla, var kannski slakastur í saumi því
ég fór ekki í húsmæðraskólann
Eitthvað að lokum?
Menntun og reynsla.....

Óskar á góðri stundu í heimalandinu
Jollinn þakkar Óskari Atla fyrir þanna tíma sem hann gaf sér til að
koma í viðtal og segja okkur þessa hlið á sér
»
06.02.2008 21:49:17 / jollinn
Hversu sorglegir geta íslenskir glæpamenn verið?? Ok flottir að ræna banka, það hlýtur að vera vel séð í glæpaheiminum, en að vera handtekinn eftir 2 1/2 tíma!!!! Vá hvað það er lélegt og ekki nóg með það þá voru tveir sem tóku leigubíl og voru handteknir þegar þeir fóru í sprey tan og andlitsbað!!!! Ekkert smá harðir gangsterar með þýfið á sér, soldið erfitt að neita fyrir að hafa tekið þátt í ráninu Svo er annar geðveikt töff, það er þessi hér: http://www.visir.is/article/20080205/LIFID01/80205043 Þið verðið bara að horfa á videoið, shit hvað kærastan hefur verið stolt og hoppað beint með honum heim eftir þetta, meina hver getur sagt nei við svona nagla!!!! Svo vil ég lýsa yfir stolti með frænda minn í dag, hann er s.s Ólafur F. Magnússon  Fyrir einhverjum 4 árum vildi hann vera rassapilla en endaði á því að vera nefúði.... You got to love it Jollinn
»
03.02.2008 20:30:00 / jollinn
Ég. Atli og KÓ höfum tekið upp á því að skella okkur stöku sinnum í kvikmyndahús. Nú er svo komið að við höfum stofnað bíó klúbb og vantar nafn. Sökum fyrirferðar í samfélaginu viljum við leifa ykkur, almúgi, að vera með í því að kjósa hvaða nafn þið teljið það besta!!!! - Bíóklúbburinn 9mm (millimetrar)
- Bíóklúbrinn Björgvin
- Bíoklúbburinn The Bjorg-vin Group
Nú er það í ykkar höndum að segja skoðanig ykkar á þessum nöfnum og einnig megið þið koma með upp á stungur og verða þær skoðaðar á næsta fundi ef okkur finnst hún þess virði.... Með von um góða samvinnu Meðlimir Bíoklúbbsins
»
31.01.2008 22:11:46 / jollinn
Var á æfingu áðan ekkert smá tilbúinn í hana, fór meira að segja út að hlaupa á undan í ógeðis frosti og roki Jæja svo byrjar æfingin á upphitun í fótbolta og ég á fullu og 15 mín búnar og ég svoleiðis sný á mér ökklann í köku núna er ég reifaður, að drepast og get ekki gengið... minnir mig á það þegar ég þurfti að skríða heim á Þjóðhátíð 2006!!!! Þegar ég hélt að ég myndi láta lífið á leiðinni heim, en sem betur fer var það Jón sem skildi mig ekki eftir (annað en sumir hafa gert á Þjóðhátíð  Undanfarna daga hef ég verið að taka annan pól í hæðina í umferðinni, í staðin fyrir að vera pirraður yfir hálfvitunum sem eru að keyra þá er ég farinn að brosa að þeim. ég er að tala um manninn sem gefur stefnuljós um leið og hann beygir, þann sem er stopp í staðinn fyrir að halda áfram út á aðreinina og er með geðveika röð á eftir sér, sá sem keyrir á 50 af því hann er að tala í símann og síðast en ekki síst sá sem keyrir í 1.gír á 15 af því að hann er að leita að götu sem hann hefur ekki hugmynd um hvar er og skoðar því gaumgæfilega öll skilti sem hann sér og hlustar ekki á fólkið fyrir aftan hann sem liggur á flautunni Ef maður brosir að þessum mönnum þá er maður bara sí brosandi í umferðinni og það er gaman Nú er að fara í gang undirbúningsvinna fyrir utanlandsferð sumarsins.... Stefnan er sett á sól og sumaryl og vil ég helst halda mig á Spáni enda tala ég nánast eins og innfæddur, nenni ekki að fara læra nýtt tungumál Er einhver sem vill koma með??? Endilega látið vita, flestir velkomnir með!!! 
Are you with?? Jollinn
»
24.01.2008 22:40:05 / jollinn
Nei ég ætla ekkert að tjá mig um borgarstjórnina með einhverjum hætti núna... Var nú bara að spá hvort Ísland sé að fara til helvítis?? Alla vega er brekkan brött niður á við. Fjármálageirinn eins og hann leggur sig er bara á hraðri leið niður á við. Pólitíkusar keppast við það að troða hnífum í bak hvers annars og Íslenska landsliðið gjörsamlega hraunaði á sig á EM í Noregi. Hvað er næst?? Ástþór sem forseti?? Hvað ætlið þið að gera í þessum gjörningi hjá honum í dag? Mér finnst hann fyndinn, gæti verið hörku persóna í einhverjum svona sketcha þætti En þá að handboltanum. Ok Ísland endaði í 11.sæti en var búið að setja markið á undanúrslit og verðlaun. Þetta var auðvitað sett með því formerki að allir yrðu heilir í mótinu. Óli var meiddur í riðlinum, Gaui nýkominn úr meiðslum og Einar bara klárlega ekki ready en svona gengur þetta bara, þýðir ekkert að afsaka sig þetta bara gekk ekki núna En það versta er að Alfreð Gísla er hættur með liðið. Ég held að það verði erfitt að vera eftir maður hans, eitt mesta legend sem Ísland hefur alið, þrátt fyrir árangurinn núna þá held ég að allir eigi eftir að sakna hans. En samt svona til að lýsa þetta eitthvað upp þá eigum við séns á Ólympíuleikunum.... Þurfum bara að spila í undankeppni með 3 öðrum liðum s.s 4 lið og 2 komast á leikana. En auðvitað lentum við í riðli með Póllandi, Argentínu og svo annað hvort Noregi eða SVÍÞJÓÐ.... hvað er málið með þessa SVÍA?? Djöfull er ég farinn að hata þá í handbolta..... Ísland er land þitt og ávallt þú geymir Jollinn
»
21.01.2008 21:29:36 / jollinn
Fullt nafn: Aron Páll Hauksson
Gælunafn: Pozi
Aldur: 25
Gift / sambúð? Lofaður henni Hróddu minni, búum í fjarbúð
Börn: Nei en ég á kött, telst það með??
Hvað eldaðir þú síðast? Pasta með tómatsósu
Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Allt!!!!!
Hvernig gemsa áttu? Það er ekki símasamband hérna nema fyrir heimasíma og NMT, á flottann Motorolla NMT síma
Uppáhaldssjónvarpsefni? House, American next top
Besta bíómyndin? Apocalypto
Hvaða tónlist hlustar þú á? Ég er mikill rapp maður en svo er ég nú líka mjög ljúftur inn við beinið
Uppáhaldsútvarpsstöð: Rás 2
Uppáhaldsdrykkur: Vatn, kókómjólk og Soja mjólk
Uppáhalds vefsíða: blog.central.is/jollinn, nba.com og kki.is
Ertu hjátrúarfull(ur)? Já ég labba ekki undir stiga og forðast það að láta svarta ketti ganga fyrir framan mig
Hverjir eru kostir þínir? Mjög einlægur og góður strákur sem vil öllum vel
Hvaða galla hefur þú? Ég er ekkert svo góður að hlusta á vandamál annarra
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Jordan og Dan Majerle Mesta afrek í lífinu? Úff ætli það sé ekki að hafa náð í konuna!!!
Mestu vonbrigði? Að hafa ekki komið ÍA á toppinn í körfunni á sínum tíma
Uppáhaldslið í enska boltanum? King Kevin og Newcastle
Hver er mesti höstlerinn af vinum þínum? Jörgensen var heitur á sínum tíma og Einar Reynis á Skaganum Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst í lífinu? Uuuu ég veit ekki alveg hvað skal segja..... Ætli það sé bara ekki „Nei félagi það geri ég ekki“ (getið lesið um það í Gullkorn hérna vinstra meginn á síðunni)
Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) Katie Melua með frúnni en Wu Tang Clan með strákunum.
Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Brynjar Karl Sigurðsson
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Bíldudalurinn en ekki hvað.
Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Eftir að ég er búinn að tefla við páfann þá eru mér allir vegir færir!!!
Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? MJ Micheal Jordan Hver er uppáhalds platan þín? Lof mér að falla að þínu eyra með Maus Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? Klárlega í saumum og svo var ég nú ekkert geðveikt sprækur í lestri!!!!
Eitthvað að lokum? Live the dream!!! Hróðný ég elska þig!!!! (oooo svo sætur í sér) 
Hérna er Pozi einmitt með kókómjólk Jollinn þakkar Aroni fyrir að hafa gefið sér tíma til að svara spurningunum og sína þjóðinni hina hliðina á sér
»
20.01.2008 18:47:55 / jollinn
Ég held að ég sé ekkert sá eini sem er pirraður yfir því hvað íslenska liðið er búið að vera lélegt á þessu Evrópumóti. Ok leikurinn á móti Svíum var alveg skelfilegur. Sóknin var bara eins og hjá meðal góðu liði í 4. flokki, ok fengum ekki á okkur nema 24 mörk en ef þú skorar ekki nema 19 þá geturu bara pakkað saman. Svo kom Slóvakaleikurinn... Þvílíkur fyrrihálfleikur, Hreiðar mjög góður og fullt af hraðaupphlaupum. Seinni hálfleikurinn varð svo lélegur og það var bara af því að vörnin og markvarslan var ekki jafn góð og við fengum ekki jafn mörg hraðaupphlaup og þurftum því að stilla upp í sókn og ekki var hún góð! Svo er það þessi Frakkaleikur ég bara verða að segja að maður bara hálfskammast sín á að horfa á sóknarleikinn hjá þessu liði, hvað er eiginlega að?? Það var talað um það fyrir mótið hvað við værum með gott sóknarlið.... er bara ekki að sjá það lið. Hreiðar Levý: Búinn að standa fyrir sínu. Átti fullkominn hálfleik á móti Slóvökum! Vantar samt soldið að halda út allan leikinn. Birkir Ívar: Svipað og Hreiðar, hefur ekkert náð að loka markinu en hefur bara gert það sem hann á að gera. Alexander: Ekkert mjög áberandi, fínn í lokinn á móti Frökkum og búinn að vera bara allt í lagi. Óli Stef: Var slakur á móti Svíum og hefur ekkert spilað síðan. Jelesky Garcia: Hörmulegur!!! Snorri Steinn: Mjög lélegur Vigir Svavars: Jújú ágætur í vörninni en ekkert geðveikt góður, var heldur ekkert verið að búast við því. Einar Hólmgeirs: Gríðarlega slakur og er greinilega ekki tilbúinn. Logi Geirs: Reynir og reynir en það er bara ekkert að koma út úr því. Robbi Gunn: Fínn en er búinn að klúðra soldið mikið af færum. Hannes Jón: Búinn að vera að spila mest í horninu og er ekkert búinn að láta mikið á sér bera. Guðjón Valur: Mikil vonbrigði. Ásgeir Örn: Jú jú hann er bara búinn að vera nokkuð ljós punktur hjá okkur, en það þarf nú ekkert að vera mjög góður til að vera það. Bjarni Fritz: Ekkert hægt að segja um hann. Sverre: Ekkert hægt að segja heldur um hann. Sigfús Sigurðsson: Það var heldur betur búið að ræða að hvað hann væri ekki tilbúinn í þetta mót og að hann væri ekki í formi en hann er bara búinn að vera alveg gríðarlega öflugur í vörninni. Besti maður liðsins í mótinu. Nú er bara að vona að strákarnir taki sig saman í andlitinu, skeini sér rækilega og komi hreinir og fínir í milliriðlanna og sýni að þeir eru miklu betri en þetta.... ÁFRAM ÍSLAND Jollinn
»
17.01.2008 13:36:26 / jollinn
Dagurinn í gær byrjaði bara ósköp venjulega og strákurinn bara nokkuð hress en svo þegar líða tók á daginn fór ég að finna fyrir smá magaverk... það er nú ekki neitt og ég hugsaði nú bara að ég þyrfti að kúka duglega Jæja það gekk ágætlega en ekki fór magaverkurinn. Svo var kennarafundur og ég þarna að drepast í maganum. Þegar hálftími var búinn af fundinum þá rauk ég út, skóf af bílnum og rauk heim. Ég þurfti svo sannarlega á allri minni einbeitingu og vilja styrk til að halda ælunni niðri þangað til ég kæmist heim. Veðrið var ekki að hjálpa mér og allir bílarnir keyrðu á 40 þegar ég hefði þurft að keyra á 140!!!! Jæja hugurinn var á fullu að reyna að hafa yfirhönd í þessari keppni við æluna.... að lokum hafði ælan betur ég átti svona 4 mín eftir heim þegar ég fann hana koma og negldi bara út í kant, upp í skafl og rauk út og þar kom líka þessi mikla gusa þar sem ég réð ekki við neitt!!!!! En þó svo ég hafði tapað þessari baráttu við æluna þá hugsaði ég að það er í lagi að tapa ef þú lúkkar vel og hvað er meira "uncool" en það að vera að æla út í vegkanti þannig að ég þóttist vera að tékka hvort það væri ekki allt í lagi með dekkið!!!!! Djöfull reddaði ég mér maður, hefði ekki viljað vera ælandi og þá kæmi einhver og spyrði hvort það væri ekki í lagi með mig Svo kom ég bara heim og þá vær ælt á klukkutíma fresti bara fram eftir kvöldi..... kominn með hita og allt!!!! En ég veit ekki hvað er í gangi með mig, hef nú verið þekktur fyrir allt annað en að vera veikur en nú er ég búinn að vera veikur 3 á 2 mánuðum!!!! Er það bara það að ég er að vinna með börnum og soga gjörsamlega allt í mig sem er að ganga eða?? Ég er samt á því að það er betra að vera veikur í 2-3 daga heldur en að vera slappur en ekki veikur í 2-3 vikur!!!! Svo verð ég nú að nota tækifærið og óska honum Atla Sveini til hamingju með afmælið, maðurinn er kominn á fertugsaldurinn og því vil ég tileinka honum þessa setningu: "You can't help getting older, but you don't have to get old." (George Burns) 
ekki deginum eldri en 22ja!!!
Jollinn
»
14.01.2008 16:06:09 / jollinn
Vegna mikilla áskoranna hef ég ákveðið að hafa Hina hliðina í hverri viku, á mánudögum. Næstur í röðinni er hinn göfugi Kjartan Ólafs.... Fullt nafn: Kjartan Ólafsson
Gælunafn: KÓ, Rothöggið, Knock Out
Aldur: 32 and going younger!!!
Gift / sambúð? Bý með dýrunum mínum upp í sveit
Börn: tja ekki sem ég játa en það er alveg líklegt, maður hefur komið víða við skal ég segja þér!!!
Hvað eldaðir þú síðast? Plokkfisk með rúgbrauði
Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Hakk, pepp, lauk og svartar ólífur
Hvernig gemsa áttu? Nokia 3G og svo einn gamlann Sony
Uppáhaldssjónvarpsefni? Prison brake, Desperate Housewifes og Laugardagslögin
Besta bíómyndin? Erfitt að gera upp á milli Shawshank og Platoon
Hvaða tónlist hlustar þú á? Klassískt rokk en er að hlusta helst á plötuna Spírur þessa dagana.
Uppáhaldsútvarpsstöð: Rohndo og Flass
Uppáhaldsdrykkur: Kókið klikkar seint en svo er ljúft að setjast niður með eitt rauðvínsglas svona á föstudögum.
Uppáhalds vefsíða: fotbolti.net, reykjalundur.is og ebay.com
Ertu hjátrúarfull(ur)? Já þarf alltaf að halda fótunum í 15 sek upp í loft áður en ég fer að sofa, annars verð ég andvaka
Hverjir eru kostir þínir? Ég er mjög góður luft/læra trommari, hjartahlýr og vinur vina minna
Hvaða galla hefur þú? Ég er ekkert rosalega þolinmóður...
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Úff það voru margir en ætli það ekki helst að nefna Björn Borg og Ingmar Stenmark
Mesta afrek í lífinu? Þegar ég lék Gogga í Strákarnir Okkar
Mestu vonbrigði? Að hafa ekki verið tilnefndur til Eddunnar fyrir Gogga í Strákarnir Okkar
Uppáhaldslið í enska boltanum? Liverpool, það má samt alveg reka Benitez!!!
Hver er mesti höstlerinn af vinum þínum? No Comment Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst í lífinu? Var einu sinni á leiðinni heim upp á Laugarvatn á aðfangadagskvöld þegar það gerði brjálað veður og ég varð fastur á Batman bílnum og þurfti að fá Björgunarsveitina til að ná í mig, það var enginn annar en Haffi kennari sem mætti til að redda mér J
Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) U2 og Creedence
Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Óli Stígs
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Grenivík, ekkert sem toppar Jónsabúð
Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Enga stund, er algjör morgunhani
Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Björn Borg
Hver er uppáhalds platan þín? Achtung Baby Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? Myndmennt og Dönsku Eitthvað að lokum? My Man!!!!
Jollinn þakkar Kjartani fyrir þáttökuna
»
09.01.2008 21:41:34 / jollinn
Ok ég er búinn að tala um veðrið og allt það hérna heima en nú verð ég bara að minnast á það hversu mikið er verið að taka okkur í þurrt rassgatið!!!!! Óskar Atli að vinna í heildverslun og fékk ég að kaupa skó hjá honum sem er kannski frásögu færandi nema að ég sá sömu skó út í búð á 5000 kalli meira við erum að tala um 80% meira!!!! Jæja svo var Kjartan nokkur Ólafsson út í hinu stórmerkilega landi USA, jæja ég ætla ekki að segja hvort USA sé eitthvað frábært eða hvað en alla vega er verðið þar gott. Ég vil meina að það sé eðlilegt en ekki á Íslandi!!!! Ég fékk KÓ til að kaupa Ipod nano handa mér sem kostar um 20 þúsund hérna heima. KÓ keypti Ipodinn á 9700!!!!! Ok það eru einhverjir skattar og eitthvað til að flytja hann inn en rólegir á að það kosti 13 þúsund að flytja inn 9700 krónu hlut!!!! Er það eðlilegt að fólk er að fara í ferðir til útlanda til að versla og það er ódýrara þó að það þurfi að borga flug og hótel......Svo fer maður á fínasta steik hús, fær sér forrétt, aðalrétt og desert og kannski eina rauðvín með og borgar kannski 3000 kall fyrir, hérna er þetta bara einhver 15 þúsund Ég ætla ekki einu sinni að ræða verðið á áfenginu af því það er búið að ræða það bara of oft... eina sem ég vil segja er að það er merkilegt að íslenska ríkið er eina "fyrirtækið" sem fær að selja einstaklingum áfengi, eins gott að það sé ekki til eitthvað sem heitir Samkeppnisstofnun....Djöfull væri ég til í að Íslendingar væru eins og frakkar þegar það kemur að mótmælum, þeir kunna sko að mótmæla "If you don't like something, change it. If you can't change it, change your attitude. Don't complain." (Maya Angelou) Jollinn-spurning um að hætta að væla og gera eitthvað í þessu!!!
»
Síður: 1 2 3 ... 26
|
Heimsóknir
Í dag: 30 Alls: 131167
Talning
Fyrir 601 dögum
Tenerife
|