Allt er rauðhærðum fært
Le Family
Menntastofnanir
Fjölmiðlar
31.01.2007 23:02:03 / jollinn

Nýtt nýtt nýtt


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 16:53:44 / jollinn

Höfnun!!!

Tvö frábær afmæli um helgina þar sem var drukkið og borðað eins og mann lysti, usss hvað þetta var gott.

En svo virðist sem líkaminn hafi hafnað mottunni!! Já þetta gerist stundum en núna komu bara ógeðis bólur og eitthvað þannig að ég ákvað að raka hana af:( en ég sakna hennar og það er aldrei að vita nema maður geri aðra tilraun fljótlega.

En ég hef oft sagt það og segji það aftur, djamm í bænum er ofmat!!! Það er alltaf eins og eins og staðan er núna þá er ég kominn með nóg. Ætla að taka nokkrar helgar í djamm pásu. Fer samt væntanlega á Þorrablótið á Laugarvatni og svo einkennist Febrúar af edrú helgum. Er fólk ekki ready í það með mér???

Megi mottan hvíla í friði

Stay Classy

Jollinn


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 11:20:19 / jollinn

Gott að vera kennari!!!

Já haldiði ekki að kallinn hafi bara orðið "big Spender" í fyrradag. Jú hvað skyldi hann nú hafa gert til að verðskulda þá nafngift?? Ég splæsti bara á mig tveimur utanlandsferðum!!! Já fyrst maður er byrjaður afhverju að hætta?? Nei þetta er nú þannig að 1.apríl fer ég til Cardiff, Wales að heimsækja Höllu, Valda og guttana og verð þar í viku, kem heim á páskadagskvöld og svo þann 12.júní erum við KÓ og Atli búnir að bóka okkur í ferð til Fuerteventura og verðum þar í tvær vikur. Erum við að grínast hvað ég er mikill heimsborgari!!! Kallinn bara alltaf í útlöndum. EINMITT. En þetta verður samt dj..... næs.

Svo í gær vorum við að spila æfingaleik við Fram. Ég var nú búinn að bíða spenntur eftir þessu. En hvað svo?? Maður er bara saltaður og ég fékk ekkert að spila!!! En svona er þetta stundum, maður þarf bara beygja sig fram og taka það eins og Gummi í Byrginu!!!;)

En í kvöld verður svo mottu partýið fræga. Ég hélt að mín væri eitthvað til að hrópa húrra fyrir og var orðinn spenntur á þriðjudaginn, en svo  bara ákvað hún að hætta að vaxa og er hún soldið ritjuleg (hef ekki hugmynd um hvernig þetta er skrifað) en ég verð nú eitthvað að vinna í henni og gera hanna soldið kúltiveraða.

Stay Classy

Jollinn


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 21:20:30 / jollinn

Hvað ætliði að gera í leiknum??

Díses kræst, hversu ótrúlegur var þessi leikur áðan. ég hafði svo mikla trú á íslenska liðinu fyrir leikinn í dag!! Einmitt. Í álverinu hvernig er hægt að skíta svona hrikalega upp á bak einn daginn og vinna svo eitt af bestu liðum í heim strax daginn eftir?? Vitið þið það að mér er eiginlega alveg sama því nú eru það bara milliriðlar og þá fær maður að horfa á fleiri spennandi leiki og ég veit það að svona 70% landsmanna sitja spenntir fyrir framan sjónvarpið eins og ég!!!!

áfram Ísland!!!


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 11:01:43 / jollinn

Teppalagning

Daginn

 Um daginn hringdi Þorvarðarson í mig og bauð mér í afmæli hjá sér og sagði mér að motta væri þemað í því teiti. Auðvitað tók ég mig strax til og fór að reyna að rækta ágætis mottu þarna rétt undir nefinu. Svo í gær vorum við að spila við Gróttu og unnum við með 6 mörkum og erum því enn ósigraðir í deildinni:D Þá kom ég með þá yfirlýsingu að ég myndi ekki raka mottuna fyrr en við myndum tapa leik og ef við förum taplausir í gegnum mótið þá væri það ekki fyrr eftir síðasta leik sem ég myndi raka hana. Ef það gengur eftir þá er síðasti leikur í lok apríl!! Skemmtilegt það. En ég verð alla vega með mottu fram að 10.feb því þá er næsti leikur hjá okkur, topp slagur í Eyjum og vonandi fær mottan að koma með til baka!!!

En í kvöld er svo 30 afmæli hjá Kidda Guðmunds ( og svo annað 30 ára afmæli um næstu helgin!! vá hvað ég á gamla vini ) Þannig að einhver mjöður mun renna niður kverkarnar hjá kallinum í kvöld. Og ef þið eruð heppin munið þið kannski sjá Jollann bregða fyrir!!!

Stay Classy

Jollinn

P.s Ný skoðanakönnun


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 21:56:41 / jollinn

Pirringur!!

Vá ég verð að koma einu frá mér.

Maðurinn sem býr fyrir neðan er leigubílstjóri sem er bara allt í góðu, nema að gaurinn fer hrikalega í taugarnar á mér!!! Við erum að tala um það að hann er að þrífa bílinn sinn á hverjum degi og stundum 2 á dag8| Þetta er allt í lagi á sumrin en á veturna þegar það er brjálað frost þá verður planið bara svell og það er varla hægt að labba út í bílinn sinn. Til að bæta dökk bláu oná svart þá eru leigubílstjórar með fínustu aðstöðu til að þrífa bílana sína hjá Hreyfilsstöðinni!! Nei gerum þetta heima fyrir utan bílskúrinn. Svo til að vera enn þá meira pirrandi þá á hann húsbíl sem hann notar aldrei og er með hann í besta stæðinu (hjá bílskúrnum beint fyrir framan hurðina hjá mér) og þar sem hann notar hann aldrei er þetta stæði aldrei laust:evil: sem ég væri alveg til í að nota í kulda eins og er núna!!!

Annars er ég bara góður, hvað með þig??

Stay Classy

Jollinn


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 19:55:09 / jollinn

Íslendingar

Í gær fórum við í paintball. Djöfull var það gaman, við fórum í það út af því að Paul, Paul og Mark sem sjá um Emirates völlinn hjá Arsenal voru á landinu. Það er snilld að fara í paintball en það er klikkað að vera í því í snjó!!! Algjör snilld. Auðvitað vann mitt lið.

Svo um kvöldið var tekið smá tjútt. Það var allt troðið í bænum og raðir út um allt. Byrjuðum á Celtic og þar var ágætis stemmning svo fórum við á Hverfis og þar var þvílík röð og ég talaði við dyravörðinn og hann sagði að það væri svo troðið að ég þyrfti að bíða smá. En þá sagði ég að við værum með nokkrum frá Arsenal og þá fórum við strax inn. Svo vildu þeir fara á Sólon og þar var sama röðin og við reyndum aftur taktíkina með að við værum með þeim frá Arsenal og þá fengum við að fara inn en af því að það var svo mikil VIP röð þá fórum við inn á hliðinni og í gegnum eldhúsið!!!! Í alvörunni hvað Íslendingar vilja geðjast þeim sem eiga að vera frægir!! Spurning um að reyna þetta eitthvað meira í framtíðinni;)

Stay Classy

Jollinn


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 21:32:49 / jollinn

Days go by!!!

já nú er lífið að detta í sinn vanagang eftir góða hátíð.

En ég og Atli erum að plana ferð út í sumar. Planið er að fara um 15.jún  út og vera í tvær vikur. Við erum að spá í ferð til Costa Del Sol en ef einhver vill koma með okkur út og vill ekki fara á Costa þá endilega komið með uppástungur, við erum eiginlega bara að hugsa um sól, strönd, bjór og djamm.

Hverjir vilja koma með???

Stay Classy

Jollinn


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.01.2007 12:03:55 / jollinn

Hvað gerir þjóðin í þessu??

Ég veit ekki hvernig Íslendingar ætla að ná sér af þeim fréttum að Magni og frú séu skilin!!!!!

Er Magni kannski að taka Rockstar æðið alla leið, Dillana og Magni??? maður spyr sig.

Stay Classy

Jollinn


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 16:30:28 / jollinn

Völvuspá 2007

Það er komið að því, ég ætla að segja ykkur hvernig árið mun líða og þá getið þið bara verið tilbúin að taka á móti því sem kemur fyrir. Ég er búinn að kíkja í spil, lesa úr kristalkúlu og einnig hef ég soldið verið að lesa í orkuna sem sólin gefur frá sér og er það mínar heimildir og er óhætt að segja að þær séu áreiðanlegar.

Veðrið 2007:

Það á eftir að skiptast á skin, skúrir og jafnvel snjókoma (bæði fyrri part árs og svo þegar líða tekur á árið) Hitinn á eftir að hækka töluvert og verður í hámarki um miðbik ársins (frá maí og fram í sept). Sólin á eftir að hækka á lofti og þá "lengist" dagurinn og að sama skapi "styttist" nóttin en svo verður kúvending og sólin lækkar aftur og dagurinn styttist og nóttin tekur aftur að lengjast.

Pólítík:

Vá nenni ekki að segja frá henni. Sjálfstæðisflokkurinn myndar ríkisstjórn með Vinstri-Grænum, Framsókn deyr.

Íþróttir:

Já ég sé einhverja titla hjá Jollanum;) UMFA kemst upp úr 1.deildinni, ég sé ekki alveg hverjir falla með ÍR úr DHL-deildinni en það kemur mjög á óvart. Íslandsmeistararnir verða rauðir og hvítir. KR á eftir að blómstra á vellinum en verður ekki meistari, FH vinnur ekki:!: Eiður Smári á eftir að meiðast verða frá í einhverjar vikur. Enskir meistarar verða rauðir eða bláir. Arsenal eða Liverpool fellur úr í fyrstu umferð í FA-cup.

Hamfarir:

Það verða 3 miklar náttúruhamfarir á árinu og 1 verður mannfall!!! passið ykkur.

Ferðalög:

Ég sé 1 pottþétta utanlandsferð hjá Jollanum þetta sumarið enda finnst mikil steikingarlykt úr kúlunni sem segir að þar verður mikil sól, ekki er útilokuð önnur ferð en það væri minni sól og meiri rólegheit:o Ekki verður mikið um ferðalög innanlands en bleytan segir að það verði alla vega ein útilega, hvar hún verður er ekki gott að segja.

Nám:

Eitthvað verður um það að fólk verði að útskrifast næsta vor og jafnvel fram á sumar. Í fjölskylduna á eftir að bætast einn stúdent en erfitt er að sjá fram á hver það er en ég ætla að leggja peninga á mömmu.

Ástarmál:

Tja þetta umfjöllunarefni er viðkvæmt og þori ég varla að tjá mig mikið um það, en það eru alla vega einhverjir neistar og þá er bara að bera að sinuna svo úr verði mikið bál í hjörtum hjá viðkomandi!!! (hversu vel er þetta orðað??)

En jæja þá vitið þið það, þið getið nú bara beðið því Jollinn hefur sagt allt sem verður merkilegt!!!

Stay Classy

Jollinn


» 1 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  29  Alls: 131682
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 607 dögum
Tenerife
Dagsetning
21. mars 2010